Aðgerð 1. - Tilkynning frá Öskru
Öskra, nýstofnuð hreyfing byltingarsinnaðra háskólanema hefur sent frá sér tilkynningu um aðgerð sem fyrirhuguð er á morgun við þingsetningu. Tilkynningin er svohljóðandi:
Þetta er yfirlýsing um að nú sé ekki tími yfirlýsinga, hvorki þeirra sem eru síðbúin greining á vandanum eða þeirra sem færa okkur von um að eitthvað breytist. Í augnablikinu er orðræðan öll glötuð. Engin orð eiga eftir að segja okkur meira en við vitum – kerfið er í rúst og stjórnendurnir keppast við að bjarga góssinu frekar en fólkinu í landinu. Ekki orð um það meir. Sameinumst um að öskra.
Öskra, hreyfing byltingasinnaðra háskólanema hvetur stúdenta og alla þá sem neita að loka augunum fyrir spillingunni að sameinast fyrir framan Háskólatorg þriðjudaginn 20 jan. Kl: 12:30 og fylkja liði niður að Alþingi til að stöðva setningu þingsins sem fyrir löngu síðan hætti að vinna í þágu okkar, ef það gerði það þá nokkurn tímann.
Öskra!