Beinar aðgerðir og borgaraleg óhlýðni

Út er komin bókin Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni á vegum Andspyrnu útgáfu.

Andspyrna við valdbeitingu og óréttlæti er náttúrulegt og eðlilegt ferli í samfélögum manna. Því erum við ekki að berjast fyrir náttúruna þegar við myndum andspyrnuhópa, heldur erum við náttúran að svara fyrir sig. Við erum heldur ekki beint að berjast fyrir betra samfélagi þegar við myndum hópa sem verja mannréttindi, heldur erum við samfélag að verja sig.

Bók þessi fjallar um beinar aðgerðir og borgaralega óhlýðni, sem verkfæri þeirra sem vilja hafa áhrif í sínu samfélagi, en hafa hvorki opinber völd né áhuga á þeim.

Hér er meðal annars fjallað um og leitað svara við eftirfarandi atriðum:

Hver er munurinn á friðsamlegum aðgerðum, borgaralegri óhlýðni og beinum aðgerðum? Hvernig má stöðva vinnu á afmörkuðu svæði og gæta eigin öryggis um leið? Hvernig er gott að standa að skipulagi aðgerða og aðgerðahópa? Hvernig geta borgarar myndað þrýstihópa, rannsakað starfsemi fyrirtækja og ef til vill hent rjómatertum í stjórnmálamenn? Er hægt að taka yfir götur og breyta þeim í útivistasvæði?

Við getum aldrei myndað hið fullkomna samfélag - en það er rétt að reyna hvað við getum til þess.

Í raun fjallar þessi bók um ábyrgð og hugrekki.