Hvítliðasveitin
Sífellt bætist í hóp þeirra sem hvetja til ofbeldis gegn þeim sem mótmæla ríkisstjórn Íslands, spillingu og kapítalisma. Sumir þeirra hafa þegar gengið til verks, sbr. Klemensbræður við Hótel Borg á Gamlársdag á meðan aðrir hafa enn einungis í munnlegum hótunum. Nú síðast fréttist að sá lögmaður sem lögreglan veitir þeim sem lögreglan yfirheyrir nú vegna rannsóknar á mótmælaaðgerðum inn í Alþingishúsinu í byrjun desember, hafi á bloggsíðu sinni hvatt til stofnun hvítliðasveitar.
Við sjáum því ástæðu til þess að setja hér upp samansafn mynda og nafna þessara ofbeldisfullu manna, aðgerðasinnum og öðrum til aðstoðar og fróðleiks. Við hvetjum alla til þess að senda okkur myndir og nöfn annarra hvítliða, auk haldbæra raka um að svo sé. Og hér hefst þá upptalningin.
Ólafur Klemensson
Ólafur er hagfræðingur, starfandi í Seðlabanka Íslands. Hann lét til sín taka við Hótel Borg á Gamlársdag þegar útsending froðusnakksþáttarins Kryddsíld var stöðvuð. Ólafur mætti þar ásamt bróður sínum Guðmundi, öskraði nýðyrðum að fólki og ýtti til þess. Hér er frekari umfjöllun um uppátæki Ólafs.
Guðmundur Klemensson
Guðmundur (vinstra megin á mynd) er svæfingarlæknir starfandi á Landsspítalanum og er bróðir Ólafs. Hann var í för með Ólafi við Hótel Borg þar sem hann lék eftir bróður sínum og hreytti út úr sér hinum fleygu orðum ,,kommúnistadrullusokkur”. Engin betri mynd fannst af Guðmundi svo við óskum eftir henni.
Baldur Hermannsson
Baldur er eðlisfræðikennari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Á bloggsíðu hans má finna daglegt hatur hans á öllum þeim sem við íhaldið vilja fella í bland við takmarkalausan sleikjuhátt við Davíð Oddsson. Hér stingur hann upp á því að stofna hvítliðasveit. Fyrir utan bloggsíðu sinna er Baldur kannski hvað helst þekktur fyrir ömurlega sjónvarpsþætti sína ,,Þjóð í viðjum hugarfarsins”.
Oddgeir Einarsson
Oddgeir er lögmaður og hefur nú eins og dagblaðið Nei. greinir frá, verið ráðin af lögreglunni til að aðstoða þá einstaklinga sem lögreglan er að rannsaka vegna mótmælaaðgerða inn í Alþingshúsinu í byrjun desember sl., þ.e. þá einstaklinga sem vilja aðstoð lögmanns. Á bloggsíðu Oddgeirs má nánast einungis finna færslur þar sem hann úthúðar mótmælendum og lengst gengur hann hér, þar sem hann hvetur til stofnun hvítliðasveitar.