Kynjakvóti feðraveldisins - eitthvað nýtt til að braska með
Kynjakvóti er meðal þeirra róttæku lausna sem lagðar voru til á jafnréttisþinginu, með því mælti meðal annars Jóhanna Sigurðardóttir jafnréttisráðherra. Hvað það er í jafnréttiskvótanum sem er róttækt fæst hinsvegar ekki upp gefið.
Róttækni merkir að fara að rótum vandans og uppræta hann þar. Hinsvegar felst “róttæknin” í kynjakvótanum í því að breyða yfir ójafnréttið sem þetta kapítalíska feðraveldi er byggt á, en með kvótanum er fyrirtækjum og stofnunum skylt að ráða konur í störf til jafns við karla á öllum hæðum valdapíramída samfélagsins. Það að það þurfi sérstakt kvótakerfi svo að ekki sé brotið á helmingi fólksins í landinu sýnir öskrandi óréttlætið sem þetta bumbukalla lýðræði er byggt á.
Við frussum á kynjakvótann, með hann verður bara braskað eins og aðra kvóta, hann er enginn lausn heldur bara yfirhylming umbótasinnaðra kapítalista.
Það er einnig ljóst að almennt jafnrétti ríkir ekki meðan valdapíramídar viðgangast og lítill hópur fólks ráðskast með líf annara, jafnvel þó svo að sá hópur kalli einn af sínum valdníðingum jafnréttisráðherra.
ENGA BREYTINGU NEMA ALGJÖRA BYLTINGU - NÚNA!