Engin mótmæli, bara óeirðir

Við erum búin að mótmæla, búin að MÆLA-Á-MÓTI, búin að segja allt málefnalegt sem þessu við kemur. En pakkið situr enn og þótt kosningar fari fram þá situr pakkið enn. Enda eru kosningar ENGIN lausn, því þá fáum við bara nýtt skítapakk sem getur sagt að ,,það hafi nú verið kosið” til að svínaríast í umboði ,,þjóðarinnar”.

NEI! Pakkið fær ekki frið. Ekki Samfylkingin, ekki Sjálfstæðisflokkurinn, ekki Frjálslyndi flokkurinn, ekki Framsókn, ekki Vinstri grænir, ekki neinn sem vill ota sínum tota og stjórnast með fólk.

Sleppum því að MÓT-MÆLA um helgina, verum á iði og gefum þeim engan frið.