ÖSKRA
Aftaka fagnar nýju systkini, ÖSKRA. Og spyr hátt og hreykin einn ÖSKRA-ndann: Af hverju að ÖSKRA?
ÖSKRA, því Háskólinn er búinn að vera algjörlega dauður og nánast alveg gagnrýnislaus á samfélagsþróun undanfarina ára og ekki ætlar að verða breyting þar á. Þeir flokkar, röskva sem er samfylking háskólans og vaka sem eru hvítflibbarnir, telja sig vera þrýstiafl stúdenta en hafa falið sig bak við “þægindapólitík” (það sem þau kalla ópólitísk hagsmunamál) í viðleitni sinni að moka þægindum undir rassgatið á stúdentum. Stefnumál þeirra hafa verið að gefa stúdentum færi á að draga sig inn í “hlutleysi” og samþykkja þannig ríkjandi fyrirkomulag. Sú stefna hefur alið af sér ógagnrýnið háskólasamfélag þar sem margir nemendur verða lítið annað en neytendur menntunnar og fara út á vinnumarkaðinn sem múldýr kapítalsins með menntastimpil á smettinu.
Núna er þörf á öflugri andspyrnu og róttækum aðgerðum en í “góðærisruglinu” höfðu fáir skilning á gildi slíks. Fólk var bara með heilan fullan myntkröfulánum og líkamsrækt. ÖSKRA er því algjörlega nauðsynlegt, líka þar sem nú heyrast þær raddir hærra en nokkru sinni fyrr að styrkja þurfi grunnstoðir samfélagsins og m.a. verði það best gert með sterku skóla og menntakerfi.
Því ÖSKRUM við á móti, því rödd stúdenta má ekki áfram syngja fölskum röddum í kór óréttlátra valdakerfa heldur verður hún að byggja upp andstöðu við það að háskólinn verði áfram grunnstoð í þeim hamfarakapítalisma sem valdhafar hafa okkur fært og sturta nú af enn meira offorsi yfir samfélagið.
ÖSKRA er stofnuð til höfuðs núverandi stúdentapólitík sem virðirst vera lítið annað en stökkpallur fyrir eiginhagsmuna-/framapotara og verðandi pótitíkusa uppfulla af karlrembu: Pólitík sem hunsar misrétti samfélagsins með því að beita sér eingöngu fyrir minniháttar umbótum og pulsuáti. Sannleikurinn er sá að umbætur eru lítið annað en friðþæging svo kúgunin geti haldið áfram og því ber okkur sem hluti af samfélaginu að gera róttækar breytingar. Ekki bíða eftir að “fulltrúar” okkar geri þær meðan við horfum á með munninn fullan af pulsum.
Hvaða ,,fyrstu” breytingar vilt þú sjá?
Nú tala ég fyriri sjálfan mig en ekki fyrir ÖSKRA:
Fyrirtæki og aðrar gróðamaskínur eiga, að mér finnst, alltof greiðan aðgang að háskólasamfélaginu. Slík er þrælslundin orðin að ekki þarf lengur hlekki til að halda fólki. Nemendafélögin eiga þar mikla sök því þau kokgleypa við gylliboðum fyrirtækja um aukin fríðindi og stæra sig af því að sænga hjá bönkunum. Kapítal-væðingin nær víst svo langt að kennslustofur háskólans eru að mér skilst nær komnar á leigumarkað. Stúdentar þurfa að reima á sig takkaskóna og sparka kapítalinu burt af campus.
Samhliða því vil ég að nemendur átti sig á eigin gerendahæfni og taki sjálfir til við að skipuleggja samfélag sitt og endurheimti háskólann sem svæði frjálsrar og gagnrýnnar hugsunar en ekki svæði frjáls fjármagns. Ég vill sjá Háskólasamfélag þar sem kapítall er drullumall í götupolli en ekki öxull valdamaskínunnar.
ÖSKRA er því ekki flotkútur í björgunaraðgerðum ríkisstjórnarinar heldur kafbátur sem ÖSKRAR og…..
JEIJJ, Aftaka er himinlifandi og hlakkar til að heyra ÖSKRA hækka og óma út fyrir veggi Háskólans og yfir allt samfélagið enda er það víst planið.