Vopnaverksmiðju rústað
Þann 17. janúar sl. réðust 6 einstaklingar inn í verksmiðju vopnaframleiðandans ITT/EDO MBM í Brighton, Englandi. Fólkið olli gífurlegu tjóni á skrifstofum fyrirtækisins og tækjum og tólum til vopnaframleiðslu. Í verksmiðjunni eru framleiddir vopna-íhlutir, sérstaklega fyrir Ísraelsher. Fólkið sem fór inn í verksmiðjuna segir aðgerðina vera samstöðuaðgerð með fólkinu á Gaza, hvers heimili hefur upp á síðkastið verið endastöð vopnaframleiðslunnar.
Samkvæmt fréttaflutningi breskra fjölmiðla eru miklar líkur á því að aðgerðin muni leiða til tímabundinar stöðvunar á framleiðslu verksmiðjunnar. BBC fréttastofan hefur þetta eftir talsmanni fyrirtækisins: ,,Rúður hafa verið brotnar og skrifstofunum snúið á hvolf á hátt sem ég myndi lýsa sem taumlaus skemmdarverk, og vélar og annar búnaður skaðaður þannig að það gæti hafa verið gert með það að leiðarljósi að stöðva framleiðsluna… Tjónið er umtalsvert og fjárhagslegur skaði verulegur.”
Eftir að fólkið var komið inn í verksmiðjuna var myndband sent á fjölmiðla þar sem það útskýrði ástæður aðgerðarinnar. Einn þeirra sagði: ,,Ísrael er að fremja hræðilegan glæp á Gaza. Hundruðir barna hafa verið myrt. Það er viðurstyggilegt að vopn sem framleidd eru hér á landi séu notuð til að drepa saklausar fólk og börn. Vopnin hafa verið notuð af algjöru handahófi. Fyrst lögin og lögreglan geta ekki gert neitt í málunum er komin tími til að einhverjir aðrir geri svo.”
30 lögreglumenn komu að verksmiðjunni og urðu vitni að því þegar tölvum og skrifstofubúnaði var hent út um glugga á annari hæð. Fólkið sem fór inn í verksmiðjuna var handtekið auk þriggja annara sem voru fyrir utan, og var fært á nærliggjandi lögreglustöðvar. Eftir á þurfti eitt þeirra á sjúkrahúsaðstoð að halda.
Vopnaverksmiðjan hefur verið skotmark Smash EDO herferðarinnar í nokkur ár. Árið 2005 fór EDO MBM með mál gegn aktívistum fyrir hæstarétt í þeim tilgangi að reyna að fækka mótmælum við verksmiðjuna. Fyrirtækið tapaði málinu sem varð til þess að herferðin gegn því fékk athygli um allt Bretland. Árið 2008 tók fyrirtækið ITT við framleiðslunni. Vikuleg mótmæli hafa átt sér stað fyrir utan verksmiðjuna síðan árið 2004 auk þess sem nokkrum sinnum hefur verið ráðist gegn verksmiðjunni og nafnið Smash EDO sett í praktík.
Svona á að gera þetta… nema bara ekki bíða eftir því að löggan mæti á svæðið heldur koma sér í burtu.